Skarðsdalur

Skíðalyftur eru þrjár:

  • Neðrilyfta, diskalyfta af Doppelmayr gerð, 430 m. löng. Fallhæð 100 m. Afkastar 480 manns á klukkustund. Byggð 1988.
  • T-lyfta, einnig af Doppelmayr gerð, 1034 m. löng. Fallhæð 220 m. Afkastar 720 manns á klukkustund.
  • Bungulyfta, diskalyfta af Doppelmayr gerð, 530 m. löng. Fallhæð 180m. Afkastar 550 manns á klukkustund. Bungulyftan er í um 650 metrum yfir sjávarmáli.

Aðstaða fyrir skíðagöngu er við Íþróttamiðstöðina að Hóli. Troðinn er 5 km. æfingahringur og lengri hringur fyrir almenning um helgar. Ljósabraut er á svæðinu sem lýsir hluta æfingabrautar. Troðin er braut upp á svokölluðum Súlum ca 5,2 km hringur.

Sími: 467 1806
Símsvari: 878 3399
skard@simnet.is
http://skard.fjallabyggd.is/