Ártúnsbrekka, Breiðholt og Grafarvogur

Innan borgarmarka Reykjavíkur eru 3 skíðalyftur sem ætlaðar eru börnum og byrjendum. Lyfturnar eru opnar þegar aðstæður leyfa kl. 17.15-20.30. 

  • Ein lyfta er í Breiðholti og er hún staðsett efst í Vatnsendahæð og er ekið að henni frá Jafnaseli.
  • Önnur lyfta er í Ártúnsbrekku við bæinn Ártún hjá gömlu Rafstöðinni og er ekið að henni frá Rafstöðvarvegi.
  • Þriðja lyftan er í Grafarvogi og er staðsett meðfram göngustíg sem liggur upp að Húsahverfi. Erfitt er að finna bílastæði við hana.

Aðgangur að lyftunum er án endurgjalds.

Upplýsingar um opnun er á skíðasímanum 530 3000.