Ef óhöpp verða í Skálafelli
Ef skíðamenn verða fyrir óhöppum eru sérþjálfaðir starfsmenn okkar ávallt reiðubúnir til aðstoðar.
Ef um alvarlegri slys er að ræða þurfa nærstaddir að leita aðstoðar næsta starfsmanns og mun hann sjá um að koma boðum til sérþjálfaðra skyndihjálparmanna sem bregðast við eftir aðstæðum. Minniháttar meiðsli eru meðhöndluð í Þjónustumiðstöð.'
Starfsmönnum er ljúft og skylt að veita þá aðstoð sem þeir eru færir um að veita.