Snjóbretti í Skálafelli
Í Skálafelli er mjög góð aðstaða fyrir snjóbrettafólk. Sérstakt tæki er notað til að gera “rennu” fyrir snjóbretti.
Við viljum hvetja brettafólk til að fara varlega í snjóhengjum sem eru utan hins skipulagða skíðasvæðis vegna snjóflóðahættu.
Samkvæmt öryggisreglum skíðasvæða á brettafólk alltaf að vera með annan fótinn lausan í stólalyftu og skylda er að hafa öryggisól á brettinu tengda við sig.