Skíðaleiðir í Bláfjöllum

Á yfirlitskorti fyrir Bláfjallasvæðið eru sýndar helstu skíðaleiðir frá hverri lyftu og eru leiðirnar einkenndar með ákveðnum lit.

Smellið á myndina til að opna stærri útgáfu

Grænar leiðir eru fyrir byrjendur. Blár leiðir eru léttar leiðir við hæfi allra sem hafa grunnkunnáttu á skíðum. Rauðar leiðir eru aðeins við hæfi góðra skíðamanna sem vilja hraða og meiri bratta. Svartar leiðir eru aðeins við hæfi bestu skíðamanna.

Fyrir byrjendur mælum við einna helst með að halda sig í nágrenni skálanna, þar sem auðveldustu lyfturnar eru.

Nyrst er Eldborgargil og eru þar fjórar lyftur. Kolbeinn kafteinn (Framlyftan), Vandráður (Beygjulyftan), Tinni (Byrjendalyftan) og Tobbi (Kaðallyftan). Best er að komast frá Eldborgargili  yfir í Kóngsgil með því að renna sér frá endastöð Vandráðs.

Næst er Kóngsgil og þar er Kóngurinn (nýja stólalyftan), Drottningin (gamla stólalyftan), Lilli klifurmús (Borgarlyftan). Patti broddgöltur (kaðallyftan) og svo auðvitað þau Amma mús og Hérastubbur (byrjendalyfturnar við Blafjallaskálann). Það er frábær staður fyrir byrjendur með auðveldum brekkum. Þar eru líka leiktæki til að hleypa enn meira lífi í skíðaferðina fyrir smáfólkið.

Sunnar komum við svo að Sólskinsbrekku og Suðurgili. Í Sólskinsbrekku er Mikki refur (tengilyfta Suðursvæðis og Kóngsgils), Jón Oddur og Jón Bjarni (diskalyfturnar tvær), Amma dreki (byrjendalyftan) og í Suðurgili er Gosinn (stólalyftan). Auðvelt er að komast á milli Sólskinsbrekku og Kóngsgils með því að fylgja troðinni braut sem tengir svæðin.