Tindastóll

Skíðasvæðið í Tindastól er sérstaklega gott fyrir alla fjölskylduna eftir að ný og glæsileg skíðalyfta var sett þar upp árið 2000. Fyrstu 300 metrarnir í aðalbrekkunni eru hentugir fyrir byrjendur en þar fyrir ofan er góður bratti. Auk þess eru góðar brautir fyrir gönguskíðafólk og gott svæði fyrir brettaiðkendur.

Á skíðasvæðinu er höfuðáhersla lögð á persónulega þjónustu. Í þjónustuhúsinu er í boði kaffi, kakó og frábært bakkelsi, auk skíðaleigu.

Sími: 453 6707
Upplýsingasími: 878 3043
http://www.tindastoll.is/