|
Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins Hitt Húsið, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík Kennitala: 590182-1339 VSK númer: 77928 Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins (SHB) urðu til með tilkomu þjónustusamnings milli tólf sveitarfélaga á Suðvesturhorni landsins árið 2003 um rekstur skíðasvæðanna í Bláfjöllum og Skálafelli. Ný stjórn SHB fór með verkefni Bláfjallanefndar auk þess að annast rekstur skíðasvæðisins í Skálafelli sem áður var alfarið á ábyrgð Reykjavíkurborgar. Í þjónustusamningnum ábyrgðust sveitarfélögin árlegt framlag til rekstrar og framkvæmda á samningstímanum. „Tilgangur þjónustusamnings var að stuðla að markvissu starfi á þeim sviðum sem skíðasvæðunum er ætlað að sinna og gera þeim mögulegt að bæta þjónustu sína. Með samningnum er einnig leitast við að tryggja sem besta nýtingu þess fjármagns sem lagt er til skíðasvæðanna með langtímaákvörðunum. Gerður var nýr þjónustusamningur milli sveitarfélaga í júlí 2008 og gildir hann til ársins 2012. Aðilar að þeim samningi eru eftirfalin sveitarfélög: Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarnesbær og Álftanes.
|