|
Helstu skálar á svæðinu eru þjónustumiðstöðin, sem er í 420 m. hæð yfir sjávarmáli, þar eru seldar veitingar af ýmsu tagi, skíðaskáli Hrannar, sem er rétt vestur af skíðasvæðinu, gamli KR skálinn, en hann stendur þar sem aðalskíðasvæðið var áður og niðri í dalnum er gamli ÍK skálinn. Miðasala er í þjónustumiðstöðinni og í bjálkahúsinu er starfrækt skíðaleiga. Við bílastæðin er annar skáli sem skíðadeild KR á. Þar eru salerni fyrir gesti.
|