 | Í Kóngsgili er Bláfjallaskáli. (475 m.y.s.) Í skálanum er miðasala, veitingasala, snyrting, skíðaleiga auk þess sem þar eru skrifstofur skíðasvæðins og sjúkrastofa. í Bláfjallaskála er ekki boðið upp á gistingu. Upplýsingasími Bláfjalla er 530 3000. |
 | Við Kóngsgil er skíðaskáli Breiðabliks. Breiðabliksskálinn býður upp á veitingasölu og snyrtingu. Í skálanum er gistiaðstaða fyrir allt að 100 manns. Skálinn er leigður út allt árið. Sími 856 1677. |
 | Skíðaskáli Ármanns er við Suðurgil og Sólskinsbrekku. Þar er boðið upp á veitingasölu, miðasölu, snyrtingu og gistiaðstöðu fyrir hópa allt að 60 manns. Sími 6913992. |
 | Skíðaskáli skíðadeilda ÍR og Víkings var tekinn í notkun 6. febrúar 2009. |
 | Í Eldborgargargili er Framskálinn sem rekin er af skíðadeild Fram. Þar er snyrting og veitingasala. Í skálanum geta skíðahópar fengið gistingu. Gistirými eru 70. Sími 856 1677. |