Skíða-og brettaleiga

Bæði í Bláfjöllum og Skálafelli starfrækja Skíðasvæðin skíðaleigur, þar sem gestir svæðanna geta leigt sér allan búnað.

Í boði eru svigskíði, bretti og gönguskíði.

Við viljum benda skólahópum á að hægt er að panta búnað fyrirfram.  Það auðveldar alla afgreiðslu. Eyðublað vegna þessa er að finna hér. Fylla þarf inn nafn hvers og eins og hvað hann ætlar að fá á leigu. Verðið er í töflunni hér fyrir neðan. Eftir að pöntunarblaðið hefur verið fyllt út skal senda það sem viðhengi á netfangið skidasvaedi@skidasvaedi.is

Í Bláfjöllum er leigan staðsett í kjallara Bláfjallaskála og í Skálafelli í bjálkahúsi við bílaplan.

Verið velkomin!

 Verðskrá 2009 Fullorðnir    Börn
 Skíði, skór og stafir    3.500 kr. 3.000 kr.
 Stafir    500 kr.     500 kr.
 Gönguskíði og skór 3.000 kr. 3.000 kr.
 Snjóbretti og skór 3.500 kr. 3.000 kr.
 Stakir hlutir 2.000 kr.  1.800 kr.