Fréttasafn
06.03.2009
Skemmtun í Bláfjöllum, opið til kl. 10
Á laugardaginn kemur (7. mars) verður haldið partý í Bláfjöllum til styrktar samtakanna Breið bros (breidbros.is). Breið bros eru samtök aðstandenda barna með skarð í vör og gómi.
Partýið mun vera í Kóngsgili í Bláfjöllum og standa frá kl 17-22 á laugardagskvöld en venjulega er opið til kl. 17 um helgar. Öðrum lyftum en í Kóngsgili verður lokað kl. 17. Aðgangseyrir á umræddu tímabili er 1000 kr í lyftur sem mun renna óskipt til samtakanna Breið bros. Við viljum því hvetja árskorthafa og aðra sem eru komnir í fjallið fyrir kl. 17 og vilja taka þátt í partýinu að “kaupa” sig aftur inn og styrkja þannig gott málefni.
Hugmyndin er að búa til Austurríska stemningu þar sem við munum m.a. selja gúllassúpu í Bláfjallaskála, bjóða uppá kakó og piparkökur.
Að auki mun verða boðið uppá frábæra skemmtun s.s.:
Brettafélag Reykjavíkur sýnir listir sínar.
Tískusýning frá versluninni Brim sem grínistinn Þorsteinn Guðmundsson mun kynna en hann mun einnig sjá um uppboð á gjafabréfum frá helstu sportvöruverslunum landsins þar sem ágóðinn mun renna til Breiðra brosa.
Kynning á Mountain Dew orkudrykknum sem allir brettamenn drekka og Ölgerðin gefur
Plötusnúðurinn Áki Pain mun þeyta skífum
Tónleikar með Dr. Spock
Og síðast en ekki síst þá verður blysför farin niður Kóngsgil kl. 20:30 þar sem öll ljós á svæðinu verða slökkt á meðan.
Iceland Excursions býður uppá fríar rútuferðir frá BSÍ kl. 16:30 og 18:30 og til baka úr fjallinu kl. 22:00.
Partýið er fyrir alla fjölskylduna og hvetjum við alla að koma og njóta góðrar stemningar í fjöllunum.
Til baka