Fréttasafn
17.01.2012
Snjór um víða veröld

Sunnudaginn 22. janúar 2012 verður alþjóðlegi World snow day eða Snjór um víða veröld haldinn í Bláfjöllum og á öllum öðrum skíðasvæðum landsins.
Í tilefni dagsins verður boðið uppá ýmsar uppákomur á hverju svæði en í Bláfjöllum verður eftirfarandi:
Allir krakkar 12 ára og yngri fá frítt í brekkurnar
20% afsláttur verður veittur af allri skíðaleigu í Bláfjöllum
Skíðadeildir bjóða uppá skíðakennslu við Bláfjallaskála kl. 12-14
Kakó og tónlist verður fyrir alla við Bláfjallaskála kl. 13-15
Sérstök barnasvæði verða sett upp í brekkunum, einnig snjóþotusvæði.
Boðið verður uppá brettakennslu í samstarfi við Mohawks
Skíðagöngufélagið Ullur verður með fría kennslu á gönguskíðum á göngusvæðinu.
Rútufyrirtækið Teitur mun veita 25% afslátt af rútuferðum á sunnudaginn.
Ásamt fleiru
Vonandi sjáum við sem flesta í fjöllunum. Eitthvað fyrir alla í fjöllunum þennan dag.
Til baka