Fréttasafn
16.01.2009
Hugur í skíðafólki
Það er greinilegt að hugur er í skíðafólki á Íslandi. Vetrarkortasala fór fram úr öllum okkar bestu væntingum og greinilegt að fólk ætlar að skíða heima í ár.
Skíðasvæðin voru opnuð 4 daga fyrir jól. Fengum 2 virka daga og eina helgi í opnun við hreint frábærar aðstæður. Gestir voru almennt mjög ánægðir með þær framkvæmdir sem áttu sér stað í sumar og haust þ.e.a.s. landmótunina og snjógirðingarnar. Það er greinilegt að vægi snjógirðinga er gríðarlegt en í vetur opnaði Norðurleiðin (Öxlin) í fyrsta skipti í manna minnum á undan Kóngsgilinu og Gosanum á suðursvæðinu. Einnig er eini bakkinn sem gefur kost á sér til æfinga um þessar mundir í Tvíburunum en þar var einnig landmótað og girðingar settar niður.
Annars er hlákutímanum mikla sem hófst á Þorláksmessu loks lokið og byrjað að snjóa. Markmiðið okkar er að ná að opna fyrir helgina en enn erum við háðir veðurguðunum til að það takist.
Til baka