Fréttasafn

07.08.2010

Hjólagarður (Bike park) í Skálafelli

Frábær dagur í Skálafelli.

Opnun hjólagarðsins í Skálafelli fór fram í gær og má með sanni segja að dagurinn hafi verið alveg stórkostlegur.  Veðrið var alveg frábært, hjólabrautin alger snilld og það var svo sannarlega gaman að sjá fjallið iðandi af mannlífi á svona góðum sumardegi.  Fjöldi fólks á öllum aldri nýtti sér það að geta farið upp með stólalyftunni og svo gegnið eða hjólað niður - eða bara notið útsýnisins og svo tekið lyftuna niður aftur.
Hjólabrautin verður opin allar helgar í ágúst og september ef veður leyfir.  Hún er fjölbreytt og skemmtileg og ástæða til að taka fram að hún er öllum fær, jafnt byrjendum sem lengra komnum.  Njótum lífsin - og munið eftir hjálmunum.

Opið verður alla laugardaga og sunnudaga í ágúst og september frá kl 12 til 17 ef veður leyfir,.
Verð í lyftur eru þessi

Dagskort 2000 kr
hálfsdagskort (síðustu 2 klst) 1300 kr
Stök ferð 500 kr

Kv.  Starfsfólk.
Beinn sími Skálafells er 566-7095

kv. Starfsfólk Skíðasvæðanna

Til baka