Fréttasafn
29.09.2009
Stökk inn í framtíðina
Langt er komið með að byggja hús yfir stólageymsluna í Kóngi.
Einnig er 1050m snjógirðing að klárast í Skálafelli í vikunni.
Í vikunni verður malarvegurinn að Skálafelli lagaður verulega og úr honum teknar þær klappir sem farnar eru að standa uppúr. Vonandi verður vegurinn svo malbikaður á næstu árum.
Færsla (snérum henni í landinu þannig að hún liggur bein) á Ömmu dreka (byrjendalyftunni á Suðursvæðinu í Bláfjöllum) og landmótun í kringum hana er lokið.
Búið er að setja ljósleiðara í jörð frá Bláfjallaskála og inná suðursvæði sem notaður verður fyrir aðgangshlið sem sett verða þar upp. Ljósleiðarinn gefur einnig þeim skálum sem þar eru möguleika á að tengjast internetinu. Með uppsetningu á hliðunum hafa Skíðasvæðin loks möguleika á að selja tímaaðgangskort t.d. 1-2 klst kort.
Seinnipart sumars fengum við loks grænt ljós á að flytja Tinna (byrjendalyfta í Eldborg) suðurfyrir Mikka ref. Sú aðgerð krefst mikillar landmótunar og uppfyllingar en jarðýtur eru í fullri vinnu þessa dagana til að koma þeirri brekku í gagnið. Með færslu á þessari lyftu inná mitt svæðið er tvímælalaust verið að bæta aðstöðu byrjenda til muna. Hliðarhallinn í Mikka ref mun einnig lagast við þessa aðgerð.
Skíðagöngumenn hafa fengið gamla Víkings húsið til afnota og hafa flutt það suður fyrir bílaplanið á Suðursvæðinu. Þar með er aðstaða skíðagöngumanna komin í mun meiri nálægð við sjálft skíðagöngusvæðið.
Að lokum viljum við nefna að Skíðasvæðin hafa fengið grænt ljós með að festa kaup á troðara á næsta ári. Búið er að ganga frá kaupunum og kemur troðarinn til landsins strax eftir næstu áramót. Um er að ræða notaðan spiltroðara í nýjustu útgáfu.
Eins og sést er verið að vinna hörðum höndum að uppbyggingu svæðisins og verðum tilbúnir að taka við miklum snjó frá 1. nóvember en þá verður öllum framkvæmdum lokið.
Til baka