Fréttasafn

12.05.2009

Nýr skíðaskáli ÍR og Víkings vígður í Bláfjöllum

Laugardaginn 9. maí var nýr skíðaskáli ÍR og Víkings vígður í Bláfjöllum.

Fjöldi gesta var við vígsluna og afhenti Kjartan Magnúson, formaður ÍTR, félögunum skálann fyrir hönd borgaryfirvalda en félögin eiga skálann saman. Framkvæmda- og eignasvið annast umsjón með framkvæmdum.

Séra Pálmi Matthíasson vígði skálann og gaf honum nafn. Heitir skálinn Hengill.

Félögunum bárust fjölda gjafa af þessu tilefni og einnig var félögunum hrósað fyrir það það mikla og jákvæða samstarf sem tekist hefur á milli skíðadeilda félaganna. Áður störfuðu félögin á skíðasvæðinu við Hengil.

Myndir frá vígslunni.

Til baka