Ef óhöpp verða í Bláfjöllum

Ef skíða- eða brettafólk verður fyrir óhappi eru sérþjálfaðir starfsmenn okkar ávallt reiðubúnir til aðstoðar. Ef um alvarlegri slys er að ræða þurfa nærstaddir að leita aðstoðar næsta starfsmanns strax og mun hann sjá um að koma boðum til sérþjálfaðra skyndihjálparmanna sem bregðast við eftir aðstæðum.

Minniháttar meiðsli meðhöndlum við fúslega í Bláfjallaskála, en þá er gengið inn um starfsmannainngang á norðurgafli hússins. Starfsmönnum okkar er ljúft og skylt að veita þá aðstoð sem þeir eru færir um að veita hverju sinni.